|
|
08.07.2007 13:48:10 / ebba
ég hætti bara líka því að við eigum örugglega ekki eftir að
halda þá áfram ;D
-ebba
hætti þá bara líka 
-hanna
»
08.07.2007 00:23:50 / Sólveig
Hæhæ,
Okkur finnst þetta
orðið hálf kjánalegt gerum eiginlega aldrei neitt og svoleiðis
..
Þetta var góður
sprettur samt 
Takk fyrir
okkur,
Arna, Kristrún,Eyrún,
Sigríður og Sólveig
»
02.07.2007 17:23:58 / Berglind
»
25.06.2007 16:12:03 / ebba
hey ! ætla að segja
þetta áður en ég gleymi því ;
26.júní verða enemas 3
mánaða !
Og ég held að við séum
ekki á leiðinni að hætta..
þannig feis

afmæliskomment frá loll ?
*-)

og lesiði bloggið hennar Hönnu fyrir neðan

»
24.06.2007 16:58:47 / Hanna
»
22.06.2007 16:16:16 / Berglind
Góðan dag góða fólk.
Við erum búnar að vera ansi latar að blogga nema hún Viktoría sem
er búin að vera nokkuð dugleg að láta heyra frá sér
Dagarnir mínir eru bara búnir að vera fínir. Ég, Laufey,
Kristrún, Kristín, Sólveig, Óskar, Eyrún, Ernir og Sigríður ? fórum
á róluvellinn hjá skólanum fyrir nokkrum kvöldum og vorum bara e-ð
að spjalla og skemmta okkur og núna eru rólurnar þar bara
aðalpleisið (Y)  heeee. Ebba búin að vera e-ð veik en henni
er víst full batnað sem er bara gott  Umm, ísát og fleira
hefur alls ekki komið sér af lista dagsverka en ég held að síðan
1.júní sé ég búin að borða ís á hverjum degi  Ég verð samt sem
áður að fara passa mig aðeins ef ég ætla að bæta mig e-ð í
þoli/þreki og bara í fótboltanum í heild!
Skálavíkurgisteríið er svo bara á næstu helgi. Hlakka gjégjé
til !  Laufey er að reyna á fullu að komast aftur í næstu viku
til að ná því en gellan er, að ég held, að fara í dag ;/ Get þó
verið stolt af mér og sagt að ég hafi bara verið mikið með henni í
þetta skipti
Í gær lagði svo Pálína 3.flokk niður :/ Núna hefur maður bara 2
valkosti, ef maður vill halda áfram að æfa sig, fara út að hlaupa
(pálína sendir sms hvað á að gera) eða mæta á meistaraflokksæfingar
 Sigríður og Eyrún eru víst búnar að vera ansi duglegar við
að fara út að hlaupa en þær hlupu nú alveg út að vita um daginn
Jáá, ekki má gleyma því að Monika er farin út ! Ég sá stelpuna
svona 2x áður en hún fór og ég kvaddi hana ekki ! Mjöög sárt því
hún verður í burtu í heila 2 mánuði og 2 vikur bara takk fyrir pent
!!
Ég hef bara lítið annað að segja, bloggið hljómaði eins og ég sé 45
ára þannig ég hætti bara hérna og sjá má að þetta sumar byrjar ekki
alveg nógu vel að mínu mati + allir eru að fara eða í burtu en já
hætt !
Berglind
P.S. Hanna átti 1 árs fermingarafmæli í gær, til hamingju með það
 :** heee.
»
20.06.2007 13:38:42 / Viktoria
»
15.06.2007 15:39:44 / Viktoria
Megalomaniac-Incubus ;*
Hææ Ætlaði aðeins að láta vita af mér hérna .
En allaveganna er allt gott að frétta af mér en ég er bara búin
að vera að vinna og gera e-ð hérna heima fyrir eins og ég var
að mála eldhúsið um daginn svo í morgun fór ég bara í vinnuna og
ég trúði bara ekki mínum eigin augum , eiginlega enginn póstur takk
fyrir pent vorum meira að segja búnar að flokka kl níu þannig ég
var aðeins með 3 kílo sem var bara æðinslegt ;D . Svo var
Kolla að biðja mig um að koma bara í bæjarvinnuna eftir hádeigi í
júlí ég er eiginlega bara að pæla í því að skella mér í hana þar
sem að það er e-ð um 500 kall á tímann er alveg til í þann pening
. Síðan er Svana frænka að fara að útskrifast úr
kennaraháskólanum á laugardaginn þannig Olla og Oddný eru að fara á
eftir með flugi semsagt að ég og tvíburarnir verðum uppí sveit að
passa Bjarna litla yfir helgina. Svo er ég búin að finna mér
GEÐVEIKAN bíl Mercedes Bens sem er já 92 árgerð "haldið ábyggilega
að hann sé ógeð" en neiii hann er sko alveg þvílíkt vel farinn og
fékk skoðun til 2008 án nokkurrar athugasemdar.

flottur ?
www.myspace.com/viktoriak4
-Viktoria Kristín
»
11.06.2007 18:03:56 / KristrúnÓsk,,
Np;
Baby It’s Fact - Hellogoodbye
Skólaferðalag 10. bekkjar vorið 2007
Við hittumst öll hress, kát og full eftirvæntingar á
Ísafjarðarflugvelli og tilbúin í slaginn. Þegar við vorum komin á
áfangastaðinn í Reykjavík, komum við okkur fyrir og skelltum okkur
á söngleikinn Leg eftir Hugleik Dagsson sem var brjálæðislega
fyndin og skemmtileg sýra. Á sunnudeginum skelltum við okkur í
snorkling á Þingvöllum þar sem fólk varð misblautt en aðallega
stelpurnar en þó skemmtu allir sér vel. Síðan lá leiðin í rafting í
Hvítá. Á miðri leið stukku nokkrir ofurhugar niður af 5 metra
kletti, þar sem Helga Jóns var fremst í flokki. Þegar því var lokið
skelltum við okkur í gufu með 2 heitum dönum sem voru í heldur
gegnsæum skýlum, ekki það að stelpurnar hafi verið að kvarta.
Snemma um mánudagsmorguninn komum við okkur upp á Leifsstöð þar sem
leið okkar lá frá snjó og sudda til sólar og sælu í Danaveldi. Þar
tók við 3 tíma ferðalag til Hejnsvig. Þar sem fjölskyldurnar tóku á
móti okkur, þá tóku við vandræðalegustu augnablik ævi okkar. Eftir
mat hittumst við öll til þess að fara í keilu. Þar bar
íslendingurinn hinn íðilfagri og ómóstæðilega lyktandi Sigurður
Páll sigur úr bítum og í 3. sæti var Sigríður. Á þriðjudeginum
mættum við í skólann, fórum i göngutúr um bæinn. Eftir það fengu
nokkrir útvaldir að lesa fyrir tvo bekki tröllasögur á dönsku, eða
það héldu þau. Margir krakkarnir vildu meina að þetta væri sko
ekkert danska heldur þýska eða sænska. Eftir þetta héldum við í
Legoland þar sem við fundum krakkana í okkur. Allir fóru í öll
tækin þó Elli væri hikandi þar sem það gæti eyðinlagt
gelgreiðsluna. Strákarnir brilleruðu þar sem þeir kepptu í jafnri
keppni við hóp 5 ára drengja. Eftir Legoland fórum við í
grillveislu heim hjá Luise þar sem Þorsteinn heillaði allar
stelpurnar uppúr skónum, að hans mati allaveganna. Um hádegið á
miðvikudeginum eftir að hafa keppt nokkra landsleiki í fóbolta og
staðið okkur nokkuð vel. Fórum við með rútu að Norðursjónum og
fengum okkur ís “siggi með intro”. Eftir það héldum
við til Esbjerg og fengum að versla smá. Síðan var haldið í Go-kart
þar sem Ragnar ökuþór hreppti verðlauna sæti. Um kvöldið fórum við
öll mjög sveitt á fínan veitingastað. Fólk borðaði mismikið og
Sigríður var þar fremst í flokki. Á fimmtudeginum var haldið til
Silkiborgar sem er staðsett í “hálendi” Danmerkur. Þar sem við
versluðum af okkur rassgatið, megnið af tímanum fór í H&M þar
sem allar stelpurnar breyttust í skrímsli og þurfti beinlínis að
draga þær út. Við tók bátsferð til Himmelbjerget þar sem við klifum
þennan risa hól sem Danir eru svo stoltir af. Eftir það lá leiðin
heim á leið þar sem við pökkuðun, fengum góða kvöldmat og kvöddum
fjölskyldurnar. Á föstudeginum héldum við loksins til Köben allir
ánægðir með það nema Þorsteinn sem skildi stóru ástina eftir. Þegar
við komum til Köben tóku við sveittir tíma í steikjandi hita. Við
byrjuðum á að skoða Christianiu. Við fengum staðarbúa til þess að
leiða okkur um plássið. Þar var margt öðruvísi, stórfurðurlegt
fólk. Það kom samt á óvart hversu stór Christiania er, en hún er um
68 fótboltavellir. Eftir það tók við uppáhalds staður allra
íslenskrakvennmanna, hvað annað en Strikið. Stelpurnar fóru beina
leið í H&M en Óskar kíkti í klámbúðirnar. Við fylltum tankinn
af tyrkneskum mat og brunuðum svo beina leið í Tívolí. Þar var
byrjað á einum vægum og svo skelltu menn sér beint í nýjasta og
hræðilegasta tækið. 80m rólu sem snýst í hringi, og það eina sem
heldur manni uppi er einhverjir örmjóir hlekkir. Svo var leiðin
greið eftir það, ekki eitt tæki sem við þorðum ekki í. Fallturninn
og stóri rússíbaninn voru vinsælastir. Um miðnætti héldum við heim
allir nema Óskar og Helga. Óskar gleymdi sér á strippstað á meðan
Helga beið á Ráðhústorginu. Á heimleiðinni voru Elli og Siggi í
eltingarleik, hann endaði á þann veg að Siggi hljóp niður
hjólreiðarmann sem var ekki lengi að forða sér í burtu. Þegar við
komum loksins á hótelið stein sofnuðu stelpurnar strax en það tók
strákana, bæði íslensku og dönsku, um 15 sek að finna bláurásina. Á
laugardeginum pökkuðum við saman, kvöddum danina og héldum heim á
leið. Hress, kát og svoldið þreytt.
Hér var ferðasagan sem ég og Siggi skrifuðum,, þar sem ég nenni
eiginlega ekki að blogga ákvað ég bara að skella henni inn
;]
KristrúnÓsk,,
»
08.06.2007 12:31:27 / Berglind
»
03.06.2007 18:16:14 / Viktoria
Gleðilegan Sjómannadag ;*
Enn já ætla aðeins að deila með ykkur ferð okkar Ingibjargar
bæði til reykjavíkur og egilsstaða 
Byrjuðum að fara heim eftir skóla á fimmtudaginn og bakaði ég
þar kökur tvær og komu fullt af krökkum heim að éta köku áður en
við lögðum í hann kl 18 uppí vélina og suður , við lenntum um hálf
sjö og var þar ekki bara Sara og Gorge þar spjallaði aðeins við
okkur og fórum svo með Ninnu , Ninna svo mikið æði pæði að hún
splæsti á subway svo var bara haldið heim DAUÐþreyttar og horfðum á
nýju þættina af One Tree Hill og þvílíkur hasar þar á ferð.
Á föstudeginum vöknuðum við kl átta höfðum okkur til og hringdum
á leigubíl kom ekki þessi GEÐVEIKT perralegi kall að sækja okkur
við vorum að deyja síðan var hann bara e-ð á að fara að hvítta
tennurnar en allaveganna vorum hjá tannsa svolítinn tíma hun bætti
við eitthverju í kjaftinn á mér sem var já ekkki þæginlegt en
héldum í smáralindina þar sem að við byrjuðum á því að sjá Jóhannes
í bónus svo löbbuðum við aðeins lengra inní lindina og sáum þar
fullt að súðvíkingum í óvissuferð og síðan Da og Ómar , en aniways
skelltum okkur í hraðbankann því Ingibjörg var svo ótrúlega gáfuð
að gleyma smáralindar kortinu sínu en jújú löbbuðum frá
hraðbankanum og hafði hun ekki gleymt kortinu bara í bankanum við
leituðum og leituðum og fundum það ekki þannig skelltum okkur bara
á subway og þaðan í landsbankann að sækja kortið hennar ingibjargar
síðan vorum við bara e-ð að versla og ætluðum að taka bara leigubíl
heim og neinei getiði hvað var það ekki sami leigubílsstjórinn og
um morgunin og sagðist hann hafa verið að bíða eftir okkur ekki
bætti það nú á perraútlitið hjá honum , síðan þegar við vorum
komnar heim á hlaðið spurði hann mig ekki hvort að hann mætti sjá
tennurnar ! ég var eins og alger kúkur og var bara e-ð heee en
allaveganna fórum aðeins inn svo kom Kristín og skutlaði okkur í
Kringluna þar kom Björk og við sáum FULLT af fólki úr fyrri tíðum.
En ætluðum að taka strætó niðrí smára og þolinmæðin var að drepa
okkur og ég var að hringja á leigubíl fyrir eitthverja útlendinga
og ákváðum við bara að hringja á annan leigubíl og já vorum e-ð í
smáranum og kom ekki hun Inga Sif og joinaði Síðan fórum við enn
og aftur á subway og svo í bíó og Pirates Of The Carabian 3 sem var
helvíti lengi en samt góð 
Svo á laugardeginum vöknuðum við geðveikt seint þannig komumst
ekki uppí mos en skelltum okkur á laugarveginn og hittum þar
Bolvíking síðan fórum við heim pökkuðum og fórum með Kristínu til
Kæju og Geira á svona sjómanna fótbolta og neinei voru þar ekki
eitthverjir Bolvíkingar líka síðan var það bara flug sem var
very shakie en bara gaman 
enn er hérna á eskifirði núna Hara-systurnar voru hérna í dag
að syngja (Y)
En hef þetta ekki lengra í bíli en endilega látið heyra í ykkur
stelpur ;*
-Viktoria Kristín <3
»
01.06.2007 22:02:56 / ebba
hæ 
já loksins er skólinn búinn, honum lauk áðan niður í víkurbæ (y)
fékk alveg ágætar einkannir, (einkunnir?) og til hamingju þið sem
fenguð viðurkenningar 
viktoría og ingibjörg eru farnar fóru í gær. kveðjuhittingurinn
var fínn, hvítakremskaka, enemas, kristín, þorgeir, ívar og aggi.
ingibjörg hringdi í mig í dag og sagðist hafa hitt fanný og búin að
kaupa sér helling gaman að heyra í henni ;* svo fer steina á
morgun, flytur til reykjavíkur 
á morgun er líka sjómannadagurinn ! gaman hitti anítu, evu
og kristínu örugglega ;* vona að það verði gott veður, hafiði tekið
eftir því að á sjómannadögum er oftast svona rok eða vindur ? *-)
ég hef tekið eftir því (y) en só. um kvöldið fer ég svo að passa
hjá halldóru dagný en vá hvað mér finnst e-ð stutt síðan
seinasti sjómannadagur var :/ jááá
ég held að þetta verður bara gott sumar, samt skítt að hafa ekki
viktoríu & ingibjörgu og skrýtið. en markaðshelgin er
framundan, afmælið hennar berglindar og fleira kanski með hönnu
(a) vona það !
en hey stelpur í 10, hvernig væri að heyra frá ykkur ? 
leiðilegt blogg, megið blogga yfir 
-ebba
 beib eftir sjómannadaginn í fyrra..er samt ekkert
búin að breytast 8-)

og ég og hanna eftir hann líka hanna breytta !
»
30.05.2007 00:25:17 / Viktoria
Gott kvöld.
Já það sem hefur drifið á dagana mina er nu ekkert voða mikið og
spennandi , en byrjum á laugardeginum þá vaknaði ég hress og kát
sturtaði mig hafði mig til og fór í heilar tvær útskriftir til
Sólveigar og Jóhanns Ólafs síðan eftir það skellti ég mér inná
ísafjörð í afmæli til Elísubetar og gisti eftir það hjá Borghild
.
Sunnudeginum: vaknaði ég horfði á princess diary 2 eða hvernig
sem það er skrifað svo fekk ég far hjá Emil og Kristínu útí vík
hitti þá Sólveigu þar sem að hun var að koma frá Danmerku með
GEÐVEIKT flott föt síðan vorum við Imba bara e-ð að dunda okkur
svo lagði ég leið mina uppeftir til pabba til að kveðja kallinn en
það er aðeins einn dagur þangað til við Ingbjörg förum :/ svo man
ég bara ekkert hvað ég gerði (Y)
Mánudeginum var ég ógó dugleg og skellti mér í ræktina og sund
með Silju horfði svo á bevó og komst af því að Janet og dóttir
hennar og Sevie heilsast vel og heitir hun Madeline ;*
Þriðjudaginn sem sagt í dag fór ég hress og kát með nýjan
fylgimann eða núna þarf Þorgeir alltaf að fylgjast mér í skólann
þar sem að Sólveig er svo stór að hun fer ekki lengur í Grunnskóla
. En allaveganna hætti við að fara í hestatúrinn og fór bara að
síga og stökkva í sjóinn síðan í sund og svo grilla (Y) Síðan
fórum við Ingibjörg bara heim til hennar síðan í klippingu og þaðan
á ísafjörð þar sem að mamma var svo góð að gefa mér tvenna puma
skoó ;* síðan fór ég bara heim og með Natalíu mína í sund ;* svo er
ég bara byrjuð að pakka niður og svona , allt að koma 8-).
En allaveganna þá er óvissuferð á morgun hjá okkur og hun er
alveg til kl 23 þannig ei verður matarboð en í staðinn ætlum við að
hittast heima hjá mér eftir skóla á fimmtudaginn og borða köku
saman áður en við Ingibjörg löbbum uppí flugvélina .

Ég og Halldór í svaka trippi fyrir austan um
páskan 
-Viktoria<3
»
27.05.2007 23:09:14 / Berglind
»
24.05.2007 18:12:45 / Viktoria
Já góðann daginn.
Er þetta ég eða er Mars frekar en mai? Þetta veður er alveg
hræðinlegt , en það lagast allt þegar ég fer austur það er alltaf
alveg yndislegt veður þar . Í dag er akkurat vika þangað til að
við Ingibjörg löbbum uppí vélina og skellum okkur suður verðum þar
í tvo daga svo höldum við aftur uppí vél 2.Júní til Egilsstaða þá
tekur vinnan við 4.Júní og þá eigum við 1.árs fermingar afmæli .
Já ég bara er ekki að komast yfir það að ég sé virkinlega að fara ,
viðurkenni það nu alveg að ég sé geðveikt eftir því :/ ég er að
fara að missa af geðveikt miklu byrjum á brúðkaupi og skírn sem er
23.júní og ég missi af því síðan er það í júli þá er Markaðshelgin
, afmælið hennar Berglindar og svo er hún Kristrún okkar að fara
sem skiptinemi til Guatemala í eitt ár og missi ég þá væntanlega af
kveðjupartyinu hennar . Síðan er þetta fyrsta sumarið hans
Halldórs Ragúels og missi ég af því og missi af ábyggilega seinasta
sumrinu hans Nonna hérna eða ég er að meina hann á eitt ár eftir í
skólanum og ég veit ekkert hver plön hans eru fyrir næsta sumar
þegar hann er búinn að útskrifast en ég fer þá í VMA. Síðan er
Sólveig og Borghild að fara til akureyrar aðeins viku eftir að ég
kem heim . Enn ég verð bara að bíta í það súra bera út póstin
græða helling af pening koma heim full af söknuði og sjá ykkur sæta
fólk .
Prófin okkar eru búinnn loksins.... Það var samt geðveikt
skrýtið að koma heim í dag eftir skólann og byrja ekki á því að
fara að læra undir próf 8-) og síðan var síðasti snyrtifræði tíminn
í dag þannig neglurnar mínar eru ótrúlega fínar nuna .
En að öðru hver horfði á Beverly Hills 90210 áðan???
Þetta var það fallegasta sjónvarpsþátta brúðkaup sem ég hef á
ævinni séð , alveg hreint ótrúlegt.

Ingibjörg & ég 
-ViktoriaK
»
Síður: 1 2 3 4
|
Samr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?¦mdu pr�?
Fyrir 1758 dögum
10. bekkur til DK!
Fyrir 1741 dögum
Arna til Fuerteventura!
Fyrir 1671 dögum
Sk�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?³lahreysti
Fyrir 1764 dögum
|